Myndir Ástralía

Hætt við!

18. júlí 2007 klukkan 16:13
Ég er hætt við að fara til Ástralíu.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.

Nei djók!!

Ég er hætt við að hafa þessa síðu ég ætla að hafa:

http://blog.central.is/steiney

eða

http://steiney.central.is

þetta er sama síða :)

Vægt sjokk

21. júní 2007 klukkan 23:41
Okey ég er í smá sjokki hérna! var að skoða svona til gamans hvað það tekur langan tíma að fljúga til Melbourne og komst að því, haldið ykkur fast, að sá tími sem það tekur að fljúga frá LOS ANGELES (ég flýg Keflavík-Boston-Los Angeles-Melbourne) til Melbourne eru FIMMTÁN OG HÁLFUR TÍMI!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Sjáumst ;*

Ísland, góða Ísland

08. júní 2007 klukkan 13:57
Góðan daginn. Ég kom heim síðasta mánudag og er bara búin að njóta þess að vera í fríi síðan þá. Vá hvað MR kennir manni að njóta þess að vera í fríi Hlæjandi Þetta verður samt annsi langt frí frá lærdómi hjá mér þar sem það er ekki markmiðið að læra mikið úti í Ástralíu vegna þess að ég fæ það ekkert metiðUllandi. En talandi um Ástralíu þá var ég að sjá flugmiðann minn þangað í gærHlæjandi. Það er flogið Keflavík - Boston - Los Angeles - Melbourne. Sem sagt 3 flug og ég er alein að ferðast vegna þess að það er enginn annar að fara til Ástralíu í haust frá Íslandi. En þetta verður allt í lagi og ég er ekkert stressuð fyrir þessu flugi (enn þá).
Þessi helgi er brjáluð það er búið að bjóða mér að gera svo margt en ég verð að velja og hafna og er að fara á AFS námskeið sem byrjar í kvöld. Þar eiga allir að flytja fyrirlestur um landið sitt og ég er að reyna að setja e-ð saman núna.

Hef þetta ekki lengra að sinni.
-Steiney

Fuck hvor var det fedt

29. maí 2007 klukkan 15:08

Ég er í Danmörku eins og er að heimsækja pabba. Kom á föstudaginn og þetta hefur verið voða mikið chill. Sólin hefur ekki ennþá látið sjá sig en það er samt ekkert smá heitt og það vill svo skemmtilega til að loftkælingin í bílnum er biluð þannig að hún blæs bara heitu lofti og ekki nóg með það heldur er ekki heldur hægt að slökkva á henni Hlæjandi Í dag fór ég í H&M, ekkert smá spennt að kaupa öll fallegu fötin sem ég hef beðið svo lengi eftir. En allt kom fyrir ekki. Ég sá ekki neitt. Þvílík vonbrigði. Ég reyndar stoppaði bara í korter en samtUllandi. Eftir það fór pabbi með mig í Kirkens Korser og gerði við mig samning um að hann gæfi mér 100 kr. (danskar) ef ég myndi kaupa mér föt fyrir það í þessari búð og ég yrði að fara allavega einu sinni í hverja flík (sem ég keypti) áður en ég færi heim til Íslands. ÞEtta voru skemmtilegustu innkaup sem ég hef gert á minni stuttu ævi. Ég keypti:

-Kjól
-Pils
-Sundbol
-Blússu
-Tvö pör af eyrnalokkum
-Tvö veski (lítil)
-Stuttbuxur
-Hálsmen
-Belti

Samtals 98 kr DSK  (1100 kr ISL)
Ég mæli eindregið með svona kaupum bæði fyrir líkama og sálGlottandi

En ég hef þetta ekki lengra að sinni
Hilsen, Steiney

úyeah

14. maí 2007 klukkan 15:55
Ég á að verað læra en hver getur hugsað um lærdóm þegar maður er verðandi skiptinemi eftir 2 og 1/2 mánuð?!! Alla vega ekki égUllandi Ég hef mikið verið að pæla í því hvað ég ætli nú að gera þarna úti og hef legið yfir netinu til að finna helstu íþróttir, hvernig tískan er og sjá hvort hitinn sé alveg óbærilegur. Ég hef komist að því að tískan er bara nokkuð svipuð og hér. Fór allavega inná síðuna hjá Vouge í Ástralíu og þá var bent á skandinavíska tískusíðu sem er gott því þá lít ég ekki út eins og eitthvert frík Svalur Íþróttin sem mest er stunduð í Ástralíu er sund. Váá hvað ég er léleg í sundi ... kann bara bringusund. En það er líka stundað það sem mér finnst dáldið mikið töff og ég ætla pottþétt að farað æfa er ...



BRIMBRETTI.  Hversu töff er það að vera Íslendingur og kunna á brimbretti?!!

Hin íþróttin sem ég er annsi heit fyrir er ...



RUGBYHlæjandi Og það er líka fyrir stelpur!! Ástraæir mættu nú fara að passa sig þegar ég kem og rugby-a öllu ;)

Vááá það verður svooo gaman :D Ég hlakka ekkert smá til!! Reyndar þá gáði ég að hitanum og hann er óbærilegurÓákveðinn

-Steiney

Prófa

12. maí 2007 klukkan 12:07
halló ég er bara að prófa þetta kerfi og gá hvort hentar betur þetta eða blog.central Hlæjandi

Auglýsing

Niðurtalning

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Prófíll

  • Nafn: Steiney Skúladóttir
  • Staður: Reykjavík

Innskráningar kubbur

Gagnasafn